Wednesday, June 17, 2009

UA-vika 9

-1,4 kg. Total 12 kg.!!!:) Markmiðið var að ná 11,7 kg. fyrir þennan tíma þannig það tókst!!:) 3 vikur í næsta markmið sem er 14,7 kg. Viku sumarbústaðaferð framundan og frí þannig nú reynir á!!:) En er bara ánægð með mig....;)

Kv. UA


Sunday, June 14, 2009

UA-Vika 8

-1,4 kg!!:) Total 10,6 kg.


Wednesday, June 03, 2009

UA-Vika 7

Já það var 1,3 Kg sem lak af þessa vikuna. Ekki græt ég það!!;) Náði að léttast þessar tvær vikur um það sem markmið mitt var en náði ekki að bæta alveg fyrir að ná ekki síðasta markmiði. Munar enn 500 gr. En ég vona að ég nái að vinna það upp á næstunni. Við hjónin bara búin að vera ágætlega dugleg og saman erum við búin að léttast um 17,6 kg. :) Vonandi næ ég bara að halda þessu áfram í sumar að mjatla niður vigtina. Það verður þá fyrsta sumarið í laaaangan tíma sem ég bæti ekki á mig!!:/ En í raun og veru 2,5 kg. eftir af því sem ég bætti á mig á meðgöngunni og þá eru bara allar hinar syndirnar eftir!!;) Næsta synd verður að vinna af sér sumarfríið í fyrra....já ótrúlegt hvað maður er duglegur að koma sér í vandræði!! En total 9,2 kg. farin af mér síðan átak hófst and I,m just gonna keep on going!!;)
En auglýsi hér með eftir vinkonu minni UB!! Spurning hvort ég þurfi að fara gera mér ferð í borg óttans og sparka í rassin á henni!!;) En endilega láta í sér heyra UB mín!!:)
Kv. UA


Wednesday, May 27, 2009

UA-Vika 6

Well well well....Mikið var nú um sukk og svínarí þessa helgina. Karlinn átti afmæli og missti ég mig aðeins í matarræðinu..hmmm. Björtu hliðarnar að við erum búin að vera dugleg að labba og er það örugglega eina ástæðan fyrir að vigtin fór eitthvað aðeins niður eða -900 gr.. DJÖÖÖ...skal taka ofurviku núna!!!! Hafa matarræði og hreyfingu í lagi!!! Verð að taka 1,8 kg. til að ná næsta markmiði!!! En til að geta klappað mér aðeins á bakið og vera ekki neikvæð þá eru 7,9 kg. farin á 6 vikum þannig að jafnaði ekki svoooo slæmur árangur en ég GET...gert betur!!!:)

kv. UA


Thursday, May 21, 2009

UA- Vika 5 í átaki...

Jæja...best að henda inn tölunum allavega. Er nú ekki búin að vera dulegust í heimi...en vigtin er samt búin að mjatlast aðeins niður. Var 700 grömm frá því að ná settu markmiði. Ég verð gjör og svo vel og spýta í lófana og bæta það upp næstu tvær vikurnar til að lenda ekki eftir á með markmiðin mín. þannig ég verð að losna við 2,7 kg. næstu tvær vikurnar...Hmm...ekki byrjaði vikan vel hjá mér...össshh..en nóg um það. Reyna éta minna og hreyfa sig meira!!!

Kv. UA


Wednesday, April 29, 2009

Vika 2- Fröken UB

Þessi vika var ekki alveg að gera sig fyrir mig, varðandi þyngdartap. Missti einungis 200 gr! Þarf að finna út af hverju ég er ekki að missa meira. Ég meira að segja japlaði á grænmeti og tók með mér fiskibollur í vinnuna í gær því það voru pizzur í matinn. ,,Svindlaði" smá á laugardaginn en ekki svo mikið að það skýri þetta litla þyngdartap. Var svo ægilega vonsvikin í morgun að ég henti mér í ræktina! Betur má ef duga skal!


UA-vika 2

Þá eru komnar tvær vikur og það voru - 1,2 kg. þessa vikuna!!:). Ég get ekki sagt annað en þetta sé bara erfitt. Er svona búin að ná að halda mig nokkurnvegin við þetta fyrir utan afmæli hjá pabba á laugardaginn. Er búin að vera vinna eiginlega alla morgna meðan strákurinn sefur og hef voða lítið getað hreyft mig. Þarf að klára ákveðinn verkefni í vinnunni og svo get ég vonandi farið að einbeita mér að mér og að vera í fæðingarorlofi!! Búin að vera ótrúlega þreytt og orkulaus síðustu daga....gæti stafað af gloppóttum nætursvefn og vinnu. :o Þó drengurinn sé góður og vær þá þarf ég samt sem áður að vakna á 3-4 klst fresti til að gefa honum og það getur tekið upp í klst. En framundan er fyrsta ferðalagið með litla prinsinn og erum við á leið í fermingarveislu á suðurlandinu og svo nokkra daga í RVK. Verður tekinn sýningartúr með nýja gripinn og hitt fóstusynina ofl. gott fólk!!:) það verður bara gaman....en stefnan er að reyna þyngjast ekki á ferðalaginu og næsta markmið er eftir þrjár vikur en ég kem með næstu tölur bara eftir tvær vikur þegar ég verð kommin heim.!!:) En gaman að því að ná fyrsta markmiðinu!!:) var orðin svo svartsýn í gær og smá uppgjöf í mér.....þetta gefur manni smá auka orku!!!!!!:)

Þar til næst....



Wednesday, April 22, 2009

UB - vika 1

Vegferðin er hafin. Bíllinn hikstar smá í byrjun á meðan maður er að koma nýja matarræðinu inn í rútínu, en svo á þetta eftir að renna smurt. Einnig er ég að glíma við mötuneytið í hádeginu en það hefur gengið bara nokkuð vel. Afrakstur fyrstu vikunnar er að 2,3 kg láku af. Ég hef ekki haft tækifæri til að henda mér í ræktina, en það kemur með hækkandi sól og betri skipulagningu. Ég ætla mér að losa mig við 10 kg í fyrstu lotu. Ætli fyrsta lotan standi ekki fram í lok júní. Já, segjum það: 10 kg verða farin af í lok júní!



Kv. UB

UA- vika 1

Jæja þá er ferðalagið hafið aftur og það er ekki hægt að segja annað en þá sé lööööng leið framundan og erfið. Síðan við UB vorum í góðum gír hér fyrir næstum tveimur árum þá höfum við báðar eignast barn og því miður hlóð ég á mig miklum farangri ekki bara á meðgöngunni heldur var ég orðin mjög þung þegar ég var ólétt. Litli kúturinn minn er núna mánaðargamall og er á brjósti þannig maður reynir að taka þessu af smá skynsemi. Hafði smá áhyggjur af því hvernig grænmetið færi í hann en ég reyni að borða fjölbreytt grænmeti og hingað til virðist þetta vera í góðu lagi. Strákurinn er stór og stæðilegur og tekur svona skorpur þar sem hann drekkur og drekkur og þá hefur mér mig fundist vanta meiri orku og þá hef ég leyft mér að fá mér hrökkbrauð með smurosti í millimál og eitthvað hef ég borðað ríflega af ávöxtum. Veðrið er búið að vera yndislegt hjá okkur og búið að vera frábært að geta leyft sér að spóka sig um með vagninn þegar aðrir eru í vinnu!!;) Þannig ég er búin að labba mikið þessa vikuna og er bara sátt við árangur vikunnar sem er -3,8 kg. :)
Ég setti inn tickerinn en það er svona langtímamarkmið sem ég sett og stefni ég á að vera búin að ná því fyrir jólin. Ég setti mér sjálf svona minni markmið á leiðinni sem eru eftirfarandi:
1. 29. apríl -4,7 kg
2. 20. maí - 7,7 kg
3. 3. júní -9,7 kg
4. 17. júní 11,7 kg
5. 8. júlí 14,7 kg.

Að þessum tíma loknum þá ætla ég að endurmeta markmiðin að lokarmarkmiði með tilliti til hvernig þetta gekk hjá mér....vonandi gengur mér bara betur!!!!:)

Kv. UA